loksins loksins biðin á enda
en ætlaði bara að láta ykkur vita að maður er búinn að gera svona barnalandsíðu fyrir blessað barnið svo allir geta fylgst með, svo margir sem eru svona annarstaðar en maður sjálfur:) svo slóðin er www.barnaland.is/barn/85160 og svo biðji þið um passwordið ef þið vitið það ekki:)
en annars gegnur allt vel og hún rosa dugleg við að súpa og rosa vær og fín allavega þessar 3 nætur sem hun hefur verið fyrir utan bumbunnardyr:) enda fékk hun topp einkunn við fæðingu jájá alveg 9 þegar hun fæddist og 5 min seinna var einkunnin búin að hækka upp í 10...já já maður á sko flott eintak:)
svo ekki sé talað um hvað stóri bróðirinn er svona líka rosalega stoltur og ánægður með systurina, allir búnir að fá að sjá myndir og rosa hamingja, ekki amalegt að eiga svona brósa:)
en dúdda mía hættum núna að tauta og röfa, ætlaði bara að láta vita af síðunni...ætla að fara að leggja mig núna:) adíós amígós:)
held að maður sé að verða geðveikur
já mina dreymdi bara í nótt að hun væri að fæða...nei og ekki nóg með það en það var þannig mál með vexti að min bara var að byrja að fá hríðar 6 um morgun og svo bara vaknar mín 6 um kvöldið og þá bara með barn við hlið sér..já þá hafði mín bara alveg farið út úr því og ekki munað neitt og hafði endað með mænurótardeifingu og svaka aksjón hafði verið í gangi og svo bara sofnað og Gummi greyið bara með barnið og það var látið drekka hjá manni án þess að maður vissi af því maður var ekki í sambandi...
held að maður sé ekki í lagi..ahahahaha...sem betur fer er þetta að verða búið, djísös bobbý all mætí...ahahaha...
hmmm svo er spurningin á maður að mæta í sundið á mánudaginn vera lengi í pottinu og koma heim og hvíla sig síðan til að safna kröftum fyrir nóttina...úú´´u..það er bara eins og maður sé að fara út á djammið eða eika...ahahahahaha....sem sagt mæting kl.21 á meðgöngudeildina:)
Biðin að verða á enda
jæja nú fer að styttast í þessi bið verði búin...
maður bara fer inn á spítala á mánudagskvöld í gangsettningu og svo heima á þriðjudaginn vonandi bara með lítið bar:) svo það er pottþétt að á þriðjudaginn VERÐUR komið lítið barn...víííí...svo örvæntið ekki kæru aðdáendur;) hehehehe...
en svo sem ekkert að frétta af manni, bara alltaf það sama, nema bakaði sukkulaðikökur í gær og skinkuhorn..sem eru btw að verða búin..hehehe...
en en þangað til næst adíós:)
NÝTT ÁR NÝTT LÍF OG LÖNG BIÐ!!!!!
vá spái þið núna er komið 2009...2008 var sko viðburðarík eins og þið kannski vitið
hehehe...og ekki verður 2009 eitthvað minna viðburðaríkara
rifjum smá upp sem gerðist 2008
Janúar: fór mín í Sveinsprófið langþráða 
Febrúar: hætti min að vinna á Wink sem var ekkert smá skrítið...
Mars: auðvitað fékk min flensuna og svo voru páskar var að pakka niður á fullu fyrir flutninga og hætti að kenna Body Combat..
Apríl: fluttum til Canada 3.apríl, fórum til Edmonton í miðjum Apríl, fluttum þangað, Gummi fékk vinnu hjá Transwest Air, Eitt svaðalegasta partýið sem ég fór í í Kanada var haldið..
Maí: fórum til Saskatoon, fattaðist að næstu 9mánuðina ætti ég bara eftir að fitna, varð 25 ára, Gummi fluttist til Stony Rapids og ég fór aftur til Edmonton, átti ÆÐISLEGAN tíma þar..
Júní: Flutti til Saskatoon til tengdó, fór í sónar og allir fengu að vita hvaða sníkjudýr hefði komið sér fyrir í maganum..Við Hjödda keyrðum til Scoby, Montana, Usa til að fá Landed Immigrant stimpilinn minn, enduðum svo á að taka 800km auka rúnt þar sem við þurftum að fara yfir til North Portal, North Dakota, Usa, þar sem þar var eini staðurinn með vegabréfsáritunarstað...
Júlí: gerðum ýmislegt túrista legt í Saskatoon, fór til Lak La Ronge í bústaðinn til Hjöddu og Dwights, Gummi kom loksins heim og flugum við svo til Minneapolis með við komu í Toronto og Chicago þar sem við þurftum að gista eina nótt, svo var komið að því FERÐALAGI ÁRSINS!!! Fjölskyldan kom loksins í heimsókn með Emil með sér
Ágúst: ferðuðumst og ferðuðumst og ferðuðumst keyrðum frá Minneapolis - James Town, ND, - Moos Jaw, SK, CA, - Drumheller, Alberta - Canmore, AB - Skookumchuck, BC - Cristina Lake, BC - Rock Creek, BC - Vernon, BC - Golden, BC - Jasper National park, AB - Pocahontas, AB - Edmonton, AB - Saskatoon, SK - Daulphin, MB (Manitoba) - Winnipeg, MB - Saskatoon, SK...svona ef þið vilduð vita hvert við höfðum farið
hehehe...Gummi fór aftur norður eftir
September: fór með Lise og fjölskyldunni hennar í bústað fyrstu helgina i sept sem er svona verslunarmannahelgi, fór í 22. vikna sónar, fór til Gumma til Stony Rapids, hélt Goodbye Dinner, pakkaði niður því semég gat og byrjaði ferðalagið til Íslands 30.sept
Október: kom heim og ALLT ÍSLAND HRUNDI!!! byrjaði í sundinu, og fékk íbúiðina okkar aftur:)
Nóvember: var bara í sundi, hitta fólk og Gummi varð 30.ára, skárum út laufabrauð
fór í sumarbústað með stelpunum
Desember: Gisti loksins í Arnarsmáranum, eða á þorláksmessu, keypti jólagjafir, þreif föt á krakkann Aðfangadagur kom og þá kom Gummi til Ísland og svo voru bara jól, jólaboð og allskyns matarboð, svo komu áramótin 
vá ekkert smá mikið búin að gera á síðasta ári..hehehhe...
en allavega nú er nýtt ár sem þýðir að maður er að verða alvöru mamma, nú er ekkert bara stjúpa neitt, úfff og hefur maður fengið viku frest og kannski fær maður eina viku í viðbót í frest
ehehe..hver veit sjáum hvað setur...allavega orðin VERULEGA þreytt á þessu, illt í bakinu fyrir alla peningana sem Bjarni Ármans á og alltaf pirruð í líkamanum þvi mig vantar almennilega hreyfingu sem ég næ ekki að fá núna vegna þynglsa og eymsla...og já fólk getur alveg andað það eru svooo margir á þessum blessaða sms lista að það fær alveg að vita það þegar þetta loksins kemur út, anda anda
hehehe..
allavega ætla að fara og halda áfram að vera illt í bakinu og hengja upp þvott 
ja er enn að velta því fyrir mer hvort ég eigi að vera að gera svona barnalandsíðu eða ekki???
Jól
GLEÐINLEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI...þakka líka öllum góðar stundir á nýju ári..og hlakka til að hitta ykkur öll og upplifa ný ævintýri og nýja reynslu...jáb alveg glæ nýr kafli í lífinu að opnast á nýju ári...össs og ekki er nú slæmur kafli sem hefur verið á þessu ári sem var Kanada...:)
en farið varlega yfir hátiðirnar..og ekki borða yfir ykkur..það er víst ekki gott..og maður fær nú bara soltið bjúg af öllum þessum mat..já allaega ég komin með bjúg eftir daginn hringana þurfti maður að taka af í miðju jólaboði og skórnir fengu að fjúka mjög snemma líka...dúdda mía..
en en þakka líka kærlega fyrir mig og ætla að halda áfram að horfa á bíódaga:D
p.s. Gummi kominn heim og það er ekkert smá æðislegt að hann sé loksins kominn, þó svo að barnið sé að venjast því að pabbi sinn er kominn aftur...það hefur eitthvað hægt um sig í nánd við Gumma:p hehehe...
Lili Bró bara stór í dag
Að hugsa sér í dag eru 12 ár síðan hann Litli Krúttilegi Bróðir minn kom í heiminn...össss tíminn er fljótur að líða..og það þýðir að það eru komin 12 ár síðan við áttum heima í Norge....jiiii dúdda mía...
hann er bara að verða unglingur og fara að fermast bráðum össum bössum bía...
en en vildi bara óska honum innilega til hamingju með afmælisdaginn og megi hann njóta hans vel og fær hann allavega nóg af pökkum í dag:)
knús á þig sæti...
og fyrir ykkur hin þar sem það er 6. des og þið kannski alveg búin að taka eftir því að maður sé með barni þá er bara akkúrat mánuður í að maður á að mæta í heiminn:) jiiii hvað tíminn líður hratt...18 dagar í Gumma sem þýðir 18 dagar í jólin....vííí ví ses
góðan og blessaðan
en allavega er búin að gera laufabrauð svo þarf maður bara að skreyta:) byrjuð á jólakortonum en hafa þau verið að eins stopp núna þar sem maður náði sér í þessa svaka skemmtilegu pest..og er alveg verra að æla og vera veikur þegar maður er orðin svona þungur á sér...
en allavega er alveg uppiskorppa með skrifitir hérna:p hehehe..
eflaust allir hættir að lesa hvort sem er:D heheh
ekki komin tím á blogg...
nóg búið að vera að gera undan farna daga:)
var með Emil Þór síðustu helgi og vorum við ekkert smá dúleg að föndra...júbb alveg trölladeigs framleiðisla..rosa stuð:)
svo var maður með fyrsta Ömmu hittinginn...ooo það var svooo gaman:) hehehe..og held að allir í blokkinni hafi fengið að heyra það:D ahahaha...æ æ leiðinlegt...eða þannig...hehehe...
mín bara búin að prjóna handstúkur og er að klára þetta líka fallega stykki yfir axlirnar, úr ull með íslensku munstri og flott heit...hehehe...
var á Les Mills fundi í gæri í World Class og var það rosa gaman og fróðlegur fundur:)
svo er það sumarbústaður um helgina með fallegu vinkonu minum...ooo verður svooo gaman svo kósy og svo mikið sukk:) ahahaha...
svo næsta laug er það brúðkaupið hennar Róseyjar..er einmitt að fara að hitta hana á eftir og ræða díteils:) gaman gaman...
sjett svo síðasta helgin í nóv kemur stóri snúðurinn til min og þá er laufabrauðsgerð með famelíunni...oooo hlakka mega til sko:)
svo er bara að styttast í að Gummi kemur...en lítur allt út fyrir að hann komi sem jólagjöf til okkar Emils á aðfangadagsmorgun..kannski fær hann far með Kertasníki:)
svo var ég í skoðun í dag lítur allt vel út..nema nottlega stoðkerfið mitt fræga:D ahahaha...ræðum það ekkert hérna...en sundið er alveg að gera sig þó svo að það sé svolítið svona gamlafólka dæmi en gerir góða hluti:) hehehehe..
höfum þetta ekkert lengra í bili...sjámst
p.s. bara 54 dagar í áætlaðan fæðingar dag:) víííííí....
á gamlan mann:)
jæja þá er komin 3. nóvember eitt árið enn...en fyrsta skipti í nokkur ár sem ég hef ekki bakað í tilefni dagsins...því ég hef engann til að baka fyrir..þetta er mjög skrítið...
já þeir sem eru ekki að kveikja á perunni, þá gerðist sá merki hlutur þennan dag árið 1978 að Guðmundur nokkur Emilsson fæddist alveg risastór já 16.merkur, takk fyrir góðan daginn og sá hinn sami er nú maki minn í dag pabbi af einu barni og annað á leiðinni eftir 64 daga eða svo...
vildi ég bara óska ELSKU BESTA YNIDSLEAG stráknum til hamingju með afmælið og vona að steikin hafi verið góð í gær og þú eigir yndisfríðan dag þó svo að við litla fjölskyldan þín séum ekki með þér í dag, þarna upp í óbyggðum, kanada ásamt indjánum, úlfum, villihundum og björnum....
sjáumst fær þessi merki maður Guðmundu Emilsson risastórt knús (ef við náum utan um hann) um jólin þegar hann kemur loksins loksins loksins á frónið fagra..þá verður kátt á hjalla í Arnarsmáranum, þar sem ég og Emil Þór litli sæti kúturinn sem er fótboltahetja munum eyða eðaltíma með afmælisbarni dagsins, og njóta síðustu daganna að vera bara 3 heima og kúra...
allavega segjum þetta gott í bili og njóttu dagsins, eins vel og hægt er...afmælis og ástar kveðjur:)
ps vá þetta er eins og grein í morgunblaðinu:D
hvað er uppi, fallegi uppi!!
já það sem er uppi er greinilega þessi blessaða kreppa, engir peningar, náum okkur niður á stóru köllunum..æi vorkennum bankastjóra mafíósunum fyrir að þyggja mikið lægri laun en hinir sem sátu í hásætinu þegar allt gekk vel og kreistu út peninga og hlutabréf upp á fleirri millur..og hvað eigum við að VORKENNA nýju skipstjórum bankanna fyrir að vera með aðeins 2 millur á mánuði....
nei KLÁRLEGA vorkenni ég þeim ekki neitt..þar sem mín mánaðarlaun eru króna með gati..hef bara mikið spáð í að leigja aftur út íbúðina okkar og bara flytjast í tjald í laugardalnum:) hvað segir ríkið þá???
sjett verð kannski fræg..kemur fyrirsögn í mogganum ÓLÉTT KONA Í LAUGARDALNUM!!!
greinin endar svo já þetta er sagan af litlu stelpunni með bumbuna í laugardalnum sem á kæró innanum Indjána í Kanada, og pungar út síðasta dag jóla. Býr hún i Laugardal því hún kláraði alla sína peninga í lækniskostnað í Kanada og flugmiða til Íslands til að vera í faðmi fjölskyldu og vina.
sjái þið þetta ekki fyrir ykkur:) ahahaha...já ok hef ekkert að gera sjeeeett....en meina þetta gæti alveg verið efni í flotta grein...
en já snjórinn mættur í húsið og þegar ég leit út fékk ég bara ómægod vildi að það væru jól núna...
en en ætla að hætta að kvabba og kveina, ætla að gera eika áður en maður fer í meðgöngusund...já já ég veit eigum við að ræða það??? nei hélt ekki...ef þið ýmindið ykkur bara 75 ára gamalt fólk í sundleikfimi fái þið svipaða niðurstöðu úr meðgöngusundi...nema þar er talað um óléttu
en ekki ellilífeyrinn...!!! ahahahaha..
kveð með bros í hjarta og nenni ekki að hlusta á meira kreppa hitt kreppa þetta...fær maður ekki hastperrur af þessu öllu saman????






